Myndlistarsjóður

Opnað fyrir umsóknir

Opnað fyrir umsóknir

Opið er nú fyrir umsóknir í Myndlistarsjóð, umsóknarfrestur stendur til 21. ágúst næstkomandi, en úthlutað verður í september. Veittir verða styrkir í fimm flokkum, en þeir eru: Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni sýningarverkefna allt að 500.000 kr. Styrkir til stærri sýningarverkefna, útgáfu-/rannsóknarstyrkir og aðrir styrkir allt að 2.000.000 kr.

Fyrri úthlutun 2017

FYRRI ÚTHLUTUN ÚR MYNDLISTARSJÓÐI 2017 Myndlistarráð úthlutar 18 millj. kr. í styrki til 50 verkefna í fyrri úthlutun sjóðsins á þessu ári. Sjóðnum bárust 121 umsókn og sótt var um alls 101,2 millj. kr. Stóru verkefnastyrkirnir að þessu sinni eru átján talsins og eru þeim veittar samtals 10.610 þús. kr. en sá flokkur er stærstur … Sjá meira

Opið fyrir umsóknir í Myndlistarsjóð

Opið er nú fyrir umsóknir í Myndlistarsjóð, umsóknarfrestur stendur til 27. febrúar næstkomandi, en úthlutað verður í marsmánuði. Veittir verða styrkir í fimm flokkum, en þeir eru:

Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni sýningarverkefna allt að 500.000 kr.
Styrkir til stærri sýningarverkefna, útgáfu-/rannsóknarstyrkir og aðrir styrkir allt að 2.000.000 kr.
Í hlekknum hér fyrir neðan má líta umsóknina í heild sinni:


Sjá hér

SEINNI ÚTHLUTUN ÚR MYNDLISTARSJÓÐI 2016

Myndlistarráð úthlutar 13.050.000 krónum í styrki til 41 verkefnis í seinni úthlutun Myndlistarsjóðs á árinu. Sjóðnum bárust 128 umsóknir og var sótt um alls 97,5 milljónir.

Stóru verkefnastyrkirnir að þessu sinni eru sautján talsins og fara þangað 6,65 m.kr. en flokkurinn er stærsti flokkur sjóðsins líkt og í fyrri úthlutunum; þar af eru fimm einkasýningar bæði hérlendis og erlendis og ellefu samsýningar. Að auki hljóta tíu myndlistarmenn styrk í flokki minni sýningarverkefna að heildarupphæð 2,5 m.kr., átta styrkir að heildarupphæð 2,6 m.kr. fara til útgáfu- og rannsókna, 1,3 m.kr er veitt til undirbúnings verkefna og annarra styrkja.