Myndlistarsjóður

Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá hlaut Heiðursviðurkenningu 2021

Í fyrsta skipti veitti myndlistarráð Heiðursviðurkenningu ásamt viðurkenningu fyrir útgefið efni sem talið er hafa mikilvægt gildi fyrir kynningu og rannsóknir á íslenskri myndlist.

Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá hlaut Heiðursviðurkenningu fyrir framlag sitt til íslenskrar myndlistar. Í umsögn Myndlistarráðs kemur fram:

Með íhugulum verkum sínum hefur hún vakið okkur til umhugsunar um siðferðileg álitamál í fortíð og nútíð og beint sjónum okkar að tímanum og hverfulleikanum, viðkvæmri náttúru landsins og tjáningarríku tungumálinu. Auk þess hefur Kristín fært menningarsögulega mikilvægan efnivið, ullina, inn í samtímalistina og sýnt fram á hvílíkan fjársjóð við eigum í íslensku ullinni.“

Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Landið hvíta, 1962, sáldþrykk á hör, 37 x 57 cm. Birt með leyfi listamannsins og i8 Gallery.

„Kristín Jónsdóttir er fædd á Munkaþverá í Eyjafirði árið 1933. Hún stundaði nám í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík 1949 til 1952 og frá 1954 til 1957 var hún nemandi í við textíldeild Kunsthåndværkerskolen í Kaupmannahöfn. Árið 1959 var hún við nám í París í École des Arts Italiennes og Atélier Freundlich og veturinn 1963 til 1964 var hún við nám á Ítalíu við Universitat per Stranieri í Perugia. Kristín kenndi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands fram til 1975 þegar hún ákvað að helga sig myndlistinni og hefur síðan þá haldið yfir 20 einkasýningar á Íslandi, í Bandaríkjunum og Kanada. Einnig hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Verk eftir hana eru í helstu listasöfnum landsins og einnig í söfnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar meðal annars silfurverðlaun Alþjólega textílþríæringsins í Lódz í Póllandi árið 1992. Kristín hefur verið virkur félagi í Textílfélaginu og var brautryðjandi hér á landi við gerð verka úr þæfðri ull.“

Frá afhendingu Íslensku myndlistarverðlaunanna. Ljósmynd: Owen Fiene.

Þá fékk Listasafns Reykjavíkur viðurkenningu fyrir útgáfu sem fylgir yfirlitssýningum á Kjarvalsstöðum á verkum myndlistarmanna á miðjum ferli.

Í umsögn dómnefndar kemur fram:

Þegar hafa verið haldnar fjórar yfirlitssýningar í þessari sýningaröð og hefur hverri sýningu fylgt bók sem jafnframt er sýningarskár. Metnaður er lagður í útgáfuna, sem er bæði á íslensku og ensku. Í hverri bók er að finna myndir af verkum listamannsins ásamt vönduðum greinum fræðafólks og listamannsins sjálfs – sem dýpkar skilning á höfundaverki listamannsins.

Myndlistarráð 2019-2022 er skipað

Helgi Þorgils Friðjónsson, formaður, skipaður án tilnefningar af Mennta- og menningarmálaráðherra.

Dagný Heiðdal, varaformaður, tilnefnd af Listasafni Íslands.

Hannes Sigurðsson, tilnefndur af Listfræðafélagi Íslands.

Guðrún Erla Geirsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra myndlistarmanna

Hlynur Helgason, tilnefndur af Sambandi íslenskra myndlistarmanna