Myndlistarsjóður

Opið er fyrir umsóknir í myndlistarsjóð 2021

Umsóknarfrestur er til miðnættis 18. febrúar 2021. Um er að ræða fyrri úthlutun úr sjóðnum á árinu en tilkynnt verður um úthlutun styrkja í marsmánuði.

Veittir verða styrkir í þrem flokkum en þeir eru eftirfarandi:

Undirbúningsstyrkir

Styrkir til sýningarverkefna

Aðrir styrkir, þar á meðal útgáfu- og rannsóknarstyrkir

Myndlistarsjóður getur veitt allt að 70% af áætluðum heildarkostnaði verkefna en alla jafna eru veittir að hámarki 3.000.000 kr. styrkir.

Umsóknum skal skila rafrænt

Smelltu hér ef þú vilt opna umsókn.
Þú velur þá umsókn sem þú vilt opna og skráir þig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Upplýsingar um Íslykil eða rafræn skilríki má finna á vefsíðu Ísland.is.

Smelltu hér ef þú vilt skoða vistaðar eða sendar umsóknir / Mínar síður.
Skráðu þig inn með sama Íslykli eða rafrænu skilríkjum og þegar þú vistaðir /sendir umsóknina.

Athugið að afrit af umsókn eða skilum eru send á það netfang sem skráð er í umsóknina.

Úthlutunarreglur myndlistarsjóðs má finna hér.
Leiðbeiningar við umsóknargerð má finna hér.

Umsóknavefurinn byggir á rafrænni eyðublaðagátt Origo, https://eydublod.is/ og er þetta kerfi í notkun hjá nokkrum opinberum stofnunum, meðal annars Þjóðskrá og safnasjóði.

Ef upp koma fyrirspurnir varðandi umsóknarferlið, vinsamlegast sendið tölvupóst á info@myndlistarsjodur.is